LabbóViltu gerast labbari?Gerast labbari

Elskarðu hunda? Fáðu borgað fyrir það.

Vertu labbari hjá Labbó og fáðu greitt fyrir að fara út með hunda eða passa þá í þínu hverfi. Þú ræður hvenær þú vinnur og hvaða verkefni þú tekur að þér.

Láttu mig vita þegar ég get skráð mig

Við sendum þér einn tölvupóst þegar Labbó opnar – ekkert annað. Persónuvernd

Allir labbarar auðkenna sig með rafrænum skilríkjum og eru 18 ára eða eldri.

Af hverju Labbó?

Þú ræður þínum tíma

Engar fastar vaktir eða lágmarksvinna. Taktu bókanir þegar þér hentar.

Þénaðu aukapening

Fáðu greitt fyrir að eyða tíma með hundum. Þú sérð alltaf hvað þú færð áður en þú tekur bókun.

Vertu í þínu hverfi

Finndu verkefni nálægt þér, án þess að þurfa að ferðast langt.

Allt í einu appi

Bókanir, samskipti og greiðslur á einum stað.

Lausar bókanir í Labbó-appinu: hundaganga í Reykjavík og Kópavogi, með áætluðum tekjum

Hvernig virkar þetta?

  1. Skráðu þig Búðu til prófíl, segðu frá þér og veldu hvaða þjónustu þú vilt bjóða.
  2. Veldu bókun Skoðaðu lausar bókanir í nágrenninu og veldu verkefni sem henta þér. Hundaeigandinn samþykkir þig áður en bókunin er staðfest og þá færðu heimilisfangið.
  3. Hugsaðu vel um hundinn Sæktu hundinn, farðu með hann í göngu eða sinntu pössuninni. Allar nauðsynlegar upplýsingar færðu í appinu.
  4. Fáðu greitt Þegar þjónustunni er lokið færðu greitt samkvæmt greiðslureglum Labbó.

Hvað geturðu þénað?

Þú færð 75% af verði hverrar bókunar. Labbó heldur eftir 25% þjónustugjaldi.

Klukkutíma ganga

2.438 kr.

af 3.250 kr.

Dagpössun í 4 tíma

3.600 kr.

af 4.800 kr.

Næturpössun

6.750 kr.

af 9.000 kr. á nótt

Því fleiri verkefni sem þú tekur að þér, því meiri geta tekjurnar orðið. Þú sérð alltaf áætlaðar tekjur áður en þú tekur bókun.

Spurt og svarað

Hvað þarf ég að vera gömul eða gamall?

Þú þarft að vera 18 ára eða eldri.

Þarf ég að hafa reynslu af hundum?

Engin formleg reynslukrafa er gerð, en þú þarft að sýna ábyrgð og treysta þér til að annast hunda á öruggan hátt. Hundurinn er alltaf í taumi utandyra.

Kostar að skrá sig?

Nei, skráning er ókeypis. Labbó tekur aðeins þjónustugjald af greiddum bókunum.

Get ég valið hvenær ég vinn?

Já! Þú ræður alveg hvaða bókanir þú tekur að þér.

Hvenær fæ ég greitt?

Greiðslan er afgreidd þegar þjónustunni er lokið og hún hefur verið staðfest, samkvæmt greiðslureglum Labbó.

Viltu byrja?

Næsti fjórfætti vinur þinn gæti verið rétt handan við hornið. Skráðu þig sem labbara og byrjaðu að fá bókanir í þínu nærumhverfi.

Spurningar? Hafðu samband á hjalp@labbo.is.

Láttu mig vita þegar ég get skráð mig

Við sendum þér einn tölvupóst þegar Labbó opnar – ekkert annað. Persónuvernd