Afbókunarreglur
Þú getur afbókað án gjalds þar til þú afhendir hundinn. Ef labbarinn afbókar borgar þú ekkert.
Ef þú afbókar
- Þú getur afbókað án gjalds þar til þú afhendir hundinn. Þá færðu allt endurgreitt.
- Ef þú vilt hætta við eftir að gangan eða pössunin er hafin greiðir þú fyrir hverja byrjaða klukkustund, minnst eina, á því verði sem þú sást þegar þú bókaðir. Hafðu þá samband á hjalp@labbo.is.
- Þú sérð alltaf nákvæmlega hvað þú færð endurgreitt áður en þú staðfestir afbókunina. Það kemur aldrei gjald á þig eftir á.
Ef labbarinn afbókar
- Þú færð allt endurgreitt nema þú veljir annan labbara í staðinn.
- Bókunin fer aftur til annarra labbara á svæðinu og verðið helst það sama ef annar tekur hana.
- Afbóki labbarinn með minna en 24 klukkustunda fyrirvara telst það sein afbókun hjá honum. Gerist það oft birtist hann neðar í leit og Labbó tekur málið til skoðunar.
Ef labbarinn er seinn
- Labbarinn getur sent skilaboðin „Ég verð seinn“ og hve lengi. Þú færð tilkynningu um það.
- Sé seinkunin 15 mínútur eða meira máttu afbóka án þess að greiða nokkuð.
- Sé gangan ekki byrjuð 10 mínútum eftir umsaminn tíma lætur Labbó þig vita.
Ef labbarinn mætir ekki
- Þegar 15 mínútur eru liðnar frá umsömdum tíma geturðu skráð „Labbarinn mætti ekki“.
- Labbó ber skráninguna saman við innskráningu labbarans og GPS-skráningu göngunnar. Sé staðfest að hann mætti ekki færðu allt endurgreitt, boð um annan labbara og atvikið er skráð hjá labbaranum.
- Passi gögnin ekki saman fer málið til starfsfólks Labbó. Kerfið dæmir það ekki sjálft.
Ef labbarinn kemst ekki að hundinum
- Þetta á við ef heimilisfangið er rangt, enginn er heima, lyklar finnast ekki eða hundurinn er ekki á staðnum. Labbarinn skráir það, reynir að ná í þig og tíminn er skráður.
- Eftir 15 mínútna bið getur bókunin talist „ekki náðist í hundinn“. Þá færðu ekki endurgreitt sjálfkrafa. Finnist þér það ekki rétt geturðu alltaf tilkynnt vandamál.
Öryggi hundsins gengur fyrir
- Labbarinn má hætta við gönguna ef aðstæður eru ekki öruggar, til dæmis ef hundurinn er árásargjarn án þess að sagt hafi verið frá því, hundurinn er veikur, umhverfið er hættulegt eða taumurinn ónothæfur. Hann skráir ástæðuna og Labbó fer yfir málið. Hvorugur aðili fær sjálfkrafa á sig athugasemd eða gjald.
Ef bókun gekk ekki eins og hún átti að gera
- Í hverri bókun er hnappurinn „Tilkynna vandamál með bókun“. Labbó skoðar tímasetningar, innskráningu, GPS-skráningu, skilaboð og greiðslur sem þegar eru í kerfinu. Þú þarft ekki að safna skjámyndum.
- Bendi gögnin til þess að gangan hafi aldrei byrjað fær labbarinn ekki greitt sjálfkrafa. Slík mál fara í skoðun hjá Labbó.