LabbóViltu gerast labbari?Gerast labbari

Greiðslur

Þú borgar fyrir göngu eða pössun með korti í Labbó-appinu. Hér er hvernig það virkar, hvað er gjaldfært og hvenær.

Hvað þú kaupir

Hundagöngu eða hundapössun hjá sjálfstæðum labbara úr hverfinu. Þú velur þjónustu, dag, tíma og lengd í appinu og sérð verðið áður en þú bókar. Verðin eru á forsíðunni: ganga 3.250 kr. á tímann, pössun yfir daginn 1.200 kr. á tímann og næturpössun 9.000 kr. á nótt.

Hvernig þú borgar

VisaMastercardApple PayGoogle Pay
  • Þú greiðir með Visa, Mastercard, Apple Pay eða Google Pay.
  • Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og kortagreiðslur fara fram í ISK.
  • Þú slærð kortaupplýsingarnar inn í appinu. Þær eru dulkóðaðar í símanum og fara dulkóðaðar til Verifone. Labbó sér aldrei kortanúmerið og geymir það ekki. Færsluhirðir er Landsbankinn.
  • Áður en þú staðfestir bókunina hakarðu við að þú samþykkir skilmála Labbó.

Hvenær er gjaldfært

  • Upphæðin er tekin frá þegar þú bókar en hún er ekki skuldfærð af greiðslukortinu fyrr en staðfest er að þjónustan hafi verið veitt.
  • Hún er gjaldfærð þegar göngunni eða pössuninni er lokið og þú hefur staðfest skilin, eða sjálfkrafa stuttu síðar ef þú tilkynnir ekki vandamál.
  • Ekkert er gjaldfært ef bókunin fer ekki fram.
  • Þú færð kvittun í appinu fyrir hverja bókun.

Afhending

Þjónustan er veitt á bókuðum tíma, heima hjá þér eða hjá pössunaraðilanum eftir því sem þú velur. Enginn sendingarkostnaður bætist við.

Afbókanir og endurgreiðslur

  • Þú getur afbókað án gjalds þar til þú afhendir hundinn. Þá færðu allt endurgreitt.
  • Ef labbarinn afbókar eða mætir ekki færðu allt endurgreitt.
  • Endurgreiðslur fara inn á sama greiðslukort og greitt var með. Það getur tekið nokkra virka daga eftir banka.
  • Ef eitthvað fór úrskeiðis í bókuninni tilkynnirðu það í appinu og Labbó fer yfir málið áður en gjaldfært er.

Afbókunarreglurnar í heild.

Seljandi

Fyrirtæki
Labbó ehf.
Kennitala
690926-2370
VSK
Ekki á virðisaukaskattsskrá
Sími
618 0077
Netfang
hjalp@labbo.is
Greiðslumiðlun
Verifone
Færsluhirðir
Landsbankinn

Labbó rekur vettvanginn en er ekki aðili að þjónustusamningi hundaeiganda og labbara. Labbó tekur við greiðslu fyrir hönd labbarans og greiðir honum hana að frádreginni þóknun. Sjálfstæður labbari selur þjónustuna. Sjá skilmála og persónuverndarstefnu, þar á meðal um meðferð kortaupplýsinga.