LabbóViltu gerast labbari?Gerast labbari

Persónuverndarstefna Labbó

Hvað við söfnum, til hvers, hver sér það og hve lengi það er geymt.

Útgáfa 2026-09-19

1. Hvaða upplýsingar við söfnum

Þegar þú notar Labbó vinnum við eftirfarandi upplýsingar:

  • Aðgangur: nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang og svæði; fyrir labbara einnig fæðingardagur, prófílmynd, kynning, þjónustur og þjónustusvæði.
  • Hundur: nafn, tegund, aldur, stærð, sérþarfir, lyf, hegðun, dýralæknir og neyðarheimild – það sem þú skráir á hundinn svo labbarinn geti sinnt honum rétt.
  • Bókanir: þjónusta, tími, staður, verð, staða bókunar, afbókanir, greiðslustaða og kvittun. Kortaupplýsingar fara aldrei í gegnum Labbó (sjá 5. kafla).
  • Staðsetning: hnit heimilisfangs bókunar (fundin í Staðfangaskrá, sjá 5. kafla), staðsetning labbarans þegar hann skráir mætingu, og staðsetningarpunktar hans frá „Byrja göngu“ til „Ljúka göngu“ (sjá 3. kafla).
  • Samskipti: skilaboð í appinu, umsagnir, tilkynningar um atvik og vandamál með bókun.
  • Myndir úr göngu: labbarinn getur sent allt að fjórar myndir meðan ganga stendur yfir. Myndirnar sjást aðeins hjá eiganda hundsins, labbaranum og Labbó, þær eru geymdar með bókuninni og eyðast með henni. Labbarinn ræður hvort hann sendir mynd og enginn er skyldugur til þess.
  • Tilkynningar: tækjaauðkenni fyrir push-tilkynningar (push token), tilkynningastillingarnar þínar og hvort þú hefur samþykkt markaðspóst. Áminningar um bókanir eru sendar 24 og 2 klst. fyrir upphaf.
  • Auðkennisstaðfesting labbara: aðeins niðurstaðan (staðfest / ekki staðfest), staðfest nafn, fæðingardagur, ríkisfang og dulkóðað (hashað) auðkenni sem er notað til að koma í veg fyrir tvöfalda aðganga. Labbó geymir hvorki skilríki né myndir af þeim.
  • Tæknilegar upplýsingar: gerð tækis, appútgáfa og villuskráningar sem þarf til að reka þjónustuna.

2. Til hvers við notum þær

Við notum upplýsingarnar til að:

  • búa til og reka aðganginn þinn og tengja hundaeigendur við labbara,
  • framkvæma bókanir: birta lausar bókanir labbörum sem uppfylla skilyrði, reikna verð, staðfesta, afbóka og endurgreiða samkvæmt afbókunarreglum,
  • sýna labbaranum upplýsingar um hundinn og heimilisfangið meðan bókun stendur yfir,
  • koma myndum sem labbarinn tekur í göngunni til eigandans
  • staðfesta hver labbarar eru áður en þeir birtast hundaeigendum,
  • staðfesta að labbari sé mættur á staðinn og sýna hundaeiganda gang hundagöngu í beinni og samantekt eftir á,
  • senda kvittun þegar greiðsla hefur tekist og áminningar fyrir bókanir,
  • fara yfir atvik, vandamál með bókanir og ágreining þegar þeir koma upp,
  • senda tilkynningar sem varða bókanirnar þínar – og markaðspóst (fréttir og tilboð frá Labbó og samstarfsaðilum okkar) aðeins ef þú hefur hakað við það. Labbó sendir þann póst sjálft og afhendir engum öðrum netfangið þitt. Þú slekkur á honum hvenær sem er undir Tilkynningar, og bókanirnar þínar breytast ekkert við það.

3. Staðsetning

Heimilisfang bókunar er varðveitt með aðgangsstýringu og birtist labbaranum fyrst þegar hann hefur tekið bókunina. Öðrum labbörum birtist aðeins hverfi/sveitarfélag og gróf staðsetning.

Þegar labbari skráir mætingu er staðsetning símans hans borin saman við heimilisfangið einu sinni. Meðan á hundagöngu stendur – frá „Byrja göngu“ til „Ljúka göngu“ – eru staðsetningarpunktar hans skráðir. Utan þess tíma er staðsetning ekki skráð. Hundaeigandi þarf aldrei að deila eigin staðsetningu.

Punktarnir eru notaðir til að reikna leið, vegalengd og tímalengd, sýna eigandanum gönguna í beinni og greina augljóslega óvenjulegar göngur til yfirferðar hjá starfsfólki. Kerfið tekur aldrei sjálfvirka ákvörðun um sekt eða greiðslu út frá staðsetningu einni saman; fólk fer yfir slík mál.

Aðeins hundaeigandi bókunarinnar, labbarinn sem sinnir henni og starfsfólk Labbó (þegar málefnaleg þörf krefur) sjá leiðina. Staðsetning birtist aldrei öðrum notendum, á prófílum eða á opinberum tenglum.

4. Hver sér hvað

Hundaeigendur sjá fornafn, mynd, kynningu, þjónustusvæði, staðfestingarstöðu og umsagnir labbara. Nákvæmt heimilisfang labbara birtist aldrei.

Labbarar sjá heimilisfang hundaeiganda fyrst þegar þeir hafa tekið bókunina, ásamt þeim upplýsingum um hundinn sem eigandinn hefur skráð, meðan bókunin stendur yfir.

Skilaboð eru aðeins sýnileg aðilum samtalsins og starfsfólki Labbó við yfirferð á atviki eða ágreiningi.

5. Þjónustuaðilar sem fá upplýsingar

Labbó rekur ekki eigin netþjóna heldur notar eftirfarandi þjónustur. Allar eru bundnar vinnslusamningi og gögn eru geymd innan EES nema annað sé tekið fram:

  • Supabase (gagnagrunnur, innskráning og bakendi, gagnaver í Írlandi): allar upplýsingar sem taldar eru upp í 1. kafla eru geymdar þar með aðgangsstýringu þar sem hver notandi sér aðeins sín gögn.
  • Kenni og Auðkenni (auðkenning labbara með rafrænum skilríkjum, Ísland): labbari skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og Labbó fær nafn og kennitölu frá Kenni. Labbó geymir nafnið og fæðingardaginn, en kennitöluna sjálfa aðeins sem óafturkræft dulkóðað gildi sem kemur í veg fyrir að sami einstaklingur stofni tvo aðganga.
  • Brevo (tölvupóstur og SMS, Frakkland): netfang, símanúmer og innihald þeirra pósta og SMS-skeyta sem Labbó sendir þér – staðfestingarkóðar, tilkynningar, áminningar, kvittanir og markaðspóstur ef þú hefur samþykkt hann.
  • Apple (iPhone) og Google (Android): push-tilkynningar fara í gegnum tilkynningakerfi tækisins. Þangað fer tækjaauðkenni og texti tilkynningarinnar.
  • Staðfangaskrá HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun): heimilisfang bókunar er flett upp í opinberri skrá til að finna hnit þess. Engar aðrar upplýsingar fylgja uppflettingunni.
  • Cloudflare (hýsing labbo.is): sér IP-tölu og tæknilegar upplýsingar vafrans eins og allir vefþjónar.
  • Greiðslumiðlun: þegar greiðslur eru virkjaðar eru kortaupplýsingar, Apple Pay og Google Pay unnin á greiðslusíðu greiðsluþjónustunnar og fara aldrei í gegnum Labbó; Labbó fær aðeins tilvísun, upphæð og stöðu greiðslu. Greiðslusíðan er rekin af Verifone og færsluhirðir er Landsbankinn hf.

Labbó selur aldrei persónuupplýsingar og deilir þeim ekki með öðrum en hér eru taldir, nema lög krefjist.

6. Hversu lengi

Aðgangs- og bókunarupplýsingar eru geymdar meðan aðgangurinn er virkur. Bókanir, kvittanir og greiðslufærslur eru geymdar eins lengi og bókhaldslög krefjast (7 ár) og meðan ágreiningur um þær getur komið upp.

Nákvæmir staðsetningarpunktar úr göngum eru geymdir í 90 daga eftir að göngu lýkur og þeim síðan eytt sjálfkrafa; samantekt göngu (tímalengd, vegalengd, upphaf og lok) fylgir bókuninni áfram.

Myndir sem labbari sendir úr göngu fylgja bókuninni og eyðast með henni. Eigandi getur beðið um að tiltekin mynd verði fjarlægð fyrr með því að senda beiðni á hjalp@labbo.is.

Skilaboð og tilkynningar um atvik eru geymd meðan þau geta skipt máli fyrir yfirferð ágreinings. Staðfestingarkóðar og auðkennislotur eru eyddar um leið og þær renna út.

7. Réttindi þín og eyðing aðgangs

Þú getur eytt aðganginum þínum í appinu undir Prófíll → „Eyða aðgangi“. Þá er aðganginum, hundunum þínum, tilkynningum, tækjaauðkennum og auðkennisupplýsingum eytt, nafn og mynd fjarlægð af labbaraprófíl og heimilisföng fyrri bókana afmáð. Bókanir, kvittanir og umsagnir standa eftir án persónugreinanlegra upplýsinga vegna bókhalds og ágreinings. Ef þú átt bókun sem er ekki lokið þarf fyrst að ljúka henni eða afbóka.

Þú getur einnig óskað eftir aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, takmörkun á vinnslu eða afriti gagna, og afturkallað samþykki (t.d. fyrir markaðspósti) þar sem vinnsla byggir á því. Sendu beiðni á hjalp@labbo.is og við svörum innan 30 daga. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

8. Ungmenni

Labbarar undir 18 ára þurfa samþykki forráðamanns áður en þeir taka bókanir; forráðamaður fær beiðni í tölvupósti og nafn hans, netfang og símanúmer eru geymd með umsókninni.

9. Öryggi

Gögn eru flutt dulkóðuð og geymd með aðgangsstýringu á gagnagrunni: hver notandi sér aðeins sín gögn, og nákvæmt heimilisfang og staðsetningargögn aðeins aðilar viðkomandi bókunar. Allar breytingar á bókunum, greiðslum og staðfestingum eru framkvæmdar á bakenda Labbó, ekki í appinu sjálfu. Stjórnendaaðgangur er bundinn við eigendur Labbó og staðfestur á bakenda í hverri beiðni.

10. Samband

Ábyrgðaraðili vinnslunnar er Labbó, hjalp@labbo.is. Fyrirspurnir um persónuvernd og tilkynningar um tjón, slys eða alvarlegt atvik í bókun fara á sama netfang. Þessi stefna var síðast uppfærð 17. september 2026; breytingar eru tilkynntar í appinu.

Labbó hjálp

Spurningar, aðstoð vegna bókunar eða aðgangs, ábendingar og ef eitthvað alvarlegt gerist í bókun.
hjalp@labbo.is

Í neyð hringirðu fyrst í 112.