LabbóViltu gerast labbari?Gerast labbari

Hundaganga og pössun í hverfinu þínu

Finndu traustan labbara í nágrenninu sem sér um hundinn þinn þegar þú kemst ekki. Þú velur hver annast hundinn og getur fylgst með göngunni í rauntíma í símanum.

Fáðu að vita fyrst þegar Labbó opnar

Ég er

Við sendum þér einn tölvupóst þegar Labbó opnar – ekkert annað. Persónuvernd

Allir notendur Labbó auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.

Verð

Verðið er það sama hjá öllum labbörum og þú sérð það áður en þú bókar.

Hundaganga

Frá 1.650 kr. hálftíma ganga

3.250 kr. á klukkutímann, frá hálftíma upp í fjóra tíma, og verðið fer eftir lengdinni. Hver aukahundur kostar 500 kr. á tímann.

Dagpössun

1.200 kr. á tímann

Minnst þrír tímar og þú borgar bara fyrir tímann sem þú bókar. Hver aukahundur kostar 1.000 kr. á dag. Ef pössunaraðilinn sækir hundinn til þín bætast 1.000 kr. við.

Næturpössun

9.000 kr. á nótt

Hundurinn gistir hjá pössunaraðilanum eða pössunaraðilinn kemur heim til þín. Afhending frá kl. 16 og hundurinn er sóttur fyrir kl. 12 daginn eftir. Hver aukahundur kostar 1.000 kr. á nótt.

Verðin eru í íslenskum krónum og þú greiðir með korti í appinu, sjá greiðslur. Þú getur afbókað án gjalds þar til þú afhendir hundinn. Afbókunarreglurnar eru hér.

Skjár í Labbó-appinu þar sem gengið er frá bókun á göngu

Hvernig virkar Labbó?

  1. Bókaðu í örfáum skrefum Veldu hundagöngu eða pössun, hvenær þjónustan á að hefjast og hversu lengi hún á að vara. Þú sérð verðið strax og skráir greiðslukort, en ekkert er gjaldfært fyrr en þjónustunni er lokið.
  2. Finndu labbara í nágrenninu Labbarar í nágrenninu fá bókunina þína og geta boðist til að taka hana. Þú sérð mynd, upplýsingar og umsagnir um labbarann áður en þú samþykkir. Heimilisfangið þitt er ekki sýnilegt fyrr en bókunin hefur verið staðfest.
  3. Örugg afhending Þegar labbarinn kemur að sækja hundinn skannar hann afhendingarkóðann í appinu þínu. Þannig er staðfest að hundurinn hafi verið afhentur og þjónustan getur hafist.
  4. Fylgstu með í rauntíma Á meðan hundurinn þinn er í göngu geturðu fylgst með leiðinni á korti í appinu. Þú veist hvar hundurinn er og hvernig gangan gengur.
  5. Hundurinn kemur heim Þegar þjónustunni lýkur er hundinum skilað á öruggan hátt. Þú færð stutta skýrslu um gönguna, meðal annars hvort hundurinn pissaði eða kúkaði. Greiðslan fer síðan fram í gegnum appið.

Allt á einum stað

Þú skráir hundinn þinn aðeins einu sinni og getur bætt við mikilvægum upplýsingum, svo sem lyfjum, ofnæmi og hegðun. Öll samskipti við labbarann fara fram í appinu, svo þú þarft ekki að gefa upp símanúmerið þitt.

Öryggi

Það getur verið stórt skref að hleypa ókunnugum inn til sín og treysta þeim fyrir hundinum. Þess vegna gerum við þetta svona:

Allir auðkenna sig

Bæði labbarar og hundaeigendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Nafnið er sótt úr skilríkjunum, svo enginn getur skráð sig undir öðru nafni.

Heimilisfangið er falið

Labbarinn sér nákvæmt heimilisfang fyrst ef þú velur hann til að taka þjónustuna að sér. Fram að því sér hann aðeins hverfið.

Gangan er skráð

Leið, tími og vegalengd skrást aðeins meðan gangan stendur yfir. Þú getur fylgst með göngunni í rauntíma og skoðað hana að henni lokinni.

Ef eitthvað kemur upp

Þú tilkynnir atvik beint úr bókuninni og við förum yfir málið. Ef hundurinn slasast eða týnist skaltu líka senda tölvupóst á hjalp@labbo.is.

Viltu gerast labbari?

Ef þú ert 18 ára eða eldri og hefur gaman af hundum geturðu tekið að þér hundagöngur og pössun þegar þér hentar. Þú sérð hvað þú færð greitt áður en þú tekur bókun. Þú skráir þig í appinu.

Lesa allt um að vera labbari →

Láttu mig vita þegar ég get skráð mig

Við sendum þér einn tölvupóst þegar Labbó opnar – ekkert annað. Persónuvernd

Spurt og svarað

Hverjir eru labbararnir?

Fólk í hverfinu, 18 ára og eldra, sem hefur skráð sig hjá okkur og auðkennt sig með rafrænum skilríkjum. Labbararnir eru ekki starfsmenn Labbó heldur ráða sjálfir hvaða bókanir þeir taka.

Get ég bókað samdægurs?

Já, ef einhver í hverfinu er laus. Þú getur líka bókað nokkra daga fram í tímann.

Hvernig borga ég?

Með Visa, Mastercard, Apple Pay eða Google Pay í appinu, í íslenskum krónum. Upphæðin er tekin frá þegar þú bókar en hún er ekki skuldfærð af greiðslukortinu fyrr en staðfest er að þjónustan hafi verið veitt. Kortaupplýsingarnar eru dulkóðaðar í símanum og fara dulkóðaðar til Verifone. Labbó sér aldrei kortanúmerið og geymir það ekki. Meira um greiðslur.

Er hundurinn tryggður?

Labbó tryggir ekki hundinn sjálfan. Ef hundurinn slasast eða veikist í göngu eða pössun greiðist kostnaður hjá dýralækni úr hundatryggingu eigandans, sé hún til staðar. Við mælum með að allir hundar sem bókaðir eru í gegnum Labbó séu tryggðir.

Hvað ef ég þarf að afbóka?

Þú getur afbókað án gjalds þar til þú afhendir hundinn. Ef labbarinn afbókar færðu allt endurgreitt.

Hvar er Labbó í boði?

Labbó er enn sem komið er aðeins í boði á höfuðborgarsvæðinu.

Ertu með einhverjar aðrar spurningar?

Sendu okkur tölvupóst á hjalp@labbo.is.

Um okkur

Labbó ehf. var stofnað í Garðabæ árið 2026. Labbó er vettvangur á vef og í appi sem tengir hundaeigendur við sjálfstæða labbara og pössunaraðila. Við sjáum til þess að allir notendur séu þeir sem þeir segjast vera.

Fyrirtæki
Labbó ehf.
Kennitala
690926-2370

Hafa samband

Labbó hjálp

Spurningar, aðstoð vegna bókunar eða aðgangs, ábendingar og ef eitthvað alvarlegt gerist í bókun.
hjalp@labbo.is

Í neyð hringirðu fyrst í 112.