Labbó

Hjálp

Hér eru svör við algengustu spurningunum. Ef svarið er ekki hér skaltu senda okkur tölvupóst.

Labbó hjálp

Spurningar, aðstoð vegna bókunar eða aðgangs, ábendingar og ef eitthvað alvarlegt gerist í bókun.
hjalp@labbo.is

Í neyð hringirðu fyrst í 112.

Algengar spurningar

Hvernig bóka ég hundagöngu?

Opnaðu appið og veldu „Ganga“. Veldu hundinn, tímann og hversu lengi gangan á að vera. Þú sérð verðið áður en þú staðfestir. Labbarar á svæðinu fá bókunina og þú samþykkir þann sem býðst til að taka hana.

Hverjir eru labbararnir?

Fólk á höfuðborgarsvæðinu sem hefur sótt um hjá Labbó og auðkennt sig með rafrænum skilríkjum. Allir labbarar eru 18 ára eða eldri.

Hvað ef ég þarf að afbóka?

Þú getur afbókað án gjalds þar til þú afhendir hundinn og færð þá allt endurgreitt. Þú afbókar í bókuninni í appinu. Reglurnar í heild eru á síðunni Afbókanir.

Hver sér staðsetninguna mína?

Við skráum staðsetningu labbarans aðeins meðan gangan stendur yfir, frá því að hann tekur við hundinum þar til hann skilar honum. Aðeins hundaeigandinn, labbarinn og Labbó sjá leiðina. Labbarinn sér nákvæmt heimilisfang fyrst ef þú velur hann til að taka þjónustuna að sér. Nánar í persónuverndarstefnunni.

Eitthvað fór úrskeiðis í bókun

Í hverri bókun er hnappurinn „Tilkynna atvik“. Ef hundurinn slasaðist, týndist eða eitthvað alvarlegt gerðist skaltu líka senda tölvupóst á hjalp@labbo.is.

Hvernig eyði ég aðganginum?

Í appinu: Prófíll → Eyða aðgangi. Nánari leiðbeiningar eru á síðunni Eyða aðgangi.